Prjónasettin frá Cloud7 eru einstaklega skemmtileg fyrir þá sem finnst gaman að takast á við skemmtileg verkefni og gera eitthvað fallegt fyrir hundana okkar. Prjónasettin eru þróuð af Cloud7 í samstarfi við þýska prjónafyrirtækið Lana Grossa - en þau innihalda hágæða ítalska merino-ull.
Peysuna má svo að sjálfsögðu nota í bland við hálskragann - sem hægt er að kaupa sérstaklega.
Nákvæmar leiðbeiningar á ensku fylgja þessari vöru. Notast þarf við prjóna í stærð 5 og hringprjón í stærð 5 - en prjónarnir fylgja ekki með.
- 100% merino-ull sem hægt er að þvo
- Má þvo á ullarprógrammi
- Sérstaklega skemmtilegt í gjafir
Stærðir
|
Ummál um bringu |
Lengd |
Þyngd hunds |
S |
44 - 50 cm |
38 - 40 cm |
2 - 6 kg |
M |
46 - 52 cm |
42 - 50 cm |
5 - 10 kg |
L |
50 - 60 cm |
48 - 56 cm |
8 - 16 kg |
XL |
58 - 70 cm |
54 - 62 cm |
12 - 23 kg |
Innihald:
100% Merino-ull
Þrif:
Þvo á mest 30°C, og þurrka með því að leggja á þurrkugrind.